SVAVAR flíspeysa
26.995 kr.
SVAVAR er klassísk heilrennd peysa fyrir herra. Létt og þægilegt miðlag sem hentar vel í ólíkar tegundir útivistar.
Þvottaleiðbeiningar
Þú getur fundið leiðbeiningar um það hvernig best er að þvo þína Cintamani flík innan á flíkinni sjálfri.
Flestar Cintamani flíkur úr flís má þvo í þvottavél. Ekki þvo flíkina á hærri hita en ráðlagt er á þvottaleiðbeiningum flíkurinnar sjálfrar, vanalega er mælt með að ekki sé þvegið útivistaflíkur á hærri hita en við 30°C.
Flísflíkurnar okkar eru úr tæknilegum efnum og þess vegna ætti að þvo þær eins sjaldan og hægt er til þess að auka líftíma þeirra.
Oft er nóg að strjúka af flíkinni með blautum klút, skola með vatni eða láta lofta um hana.
Mýkingarefni getur eyðilagt útivistaflíkur og ekki ætti að nota þau. Það er mælt með því að notuð sé minna en matskeið af þvottaefni, sem er án aukaefna eða sérstakt þvottaefni fyrir flís. Það er sérstaklega varað við þvottaefnum með mýkingarefnum.
Það fer mjög illa með flís að setja það í þurrkara og það má alls ekki strauja það.
Lokaðu öllum rennilásum og frönskum rennilásum, nema þeim sem eru fyrir vösum, áður en flíkin er þvegin.
Til að fara sem best með flíkina í þvotti, er best að velja kerfi í þvottavélinni sem er ætlað viðkvæmum þvotti, eins og ullar eða silkikerfi og forðast að vinda.
NÁNAR UM FLÍKINA
- Peysa úr Tecnostretch®-efni frá Pontetorto® sem teygist á fjóra vegu, er slitsterkt og auðvelt að meðhöndla
- Tecnostretch® er Bluesign®-vottað sem tryggir umhverfisvæna og örugga framleiðslu
- Í hliðum er Tecnopile®-efni frá Pontetorto® sem er sterkt örtrefjaefni sem heldur einstaklega vel hita miðað við þyngd og er mjúkt viðkomu
- Heilrennd með YKK®-rennilás að framan
- Hár kragi sem fellur vel að hálsi
- Tveir renndir hliðarvasar og einn brjóstvasi með YKK®-rennilásum og neti til að auka öndun
- Flatir saumar til að koma í veg fyrir að þeir erti húðina